7. Lambagjá

Lambagjáin, sem reyndar er hrauntröð, er bæði löng og breið. Til marks um mikilfengleik hennar má geta þess að hún er nú friðlýst sem náttúruvætti. Áberandi mannvirki liggur þvert á Lambagjá vestarlega – há steinhleðsla. Þetta eru leifar af undirhleðslu fyrsta vatnsstokksins sem var lagður úr Kaldárbotnum um 1918. Vatninu var fleytt í opnum tréstokk að suðurenda Sléttuhlíðar þar sem það rann fram af brúninni og hripaði ofan í hraunið en kom upp í Lækjarbotnum. Þú ert núna við eina „gegnumganginn“ í gjánni; svonefnda Steinbrú. Yfir hann liggur gömul fjárgata. Önnur brú yfir gjánna er skammt austar.

 


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband