26 - Gamla þúfa

Svo nefnist hæsta hæðin í Almenningi, ágætt kennileiti. Um er að ræða gróna þúfu efst á þversprungnum hraunkletti í u.þ.b. 110 m hæð yfir sjó. Hún sést vel frá Straumsseli og áður fyrr var hún þekkt kennileiti á Straumsselsstíg áleiðis að Fjallinu eina.

Skammt vestan við „þúfuna“ er hlaðin varða þar sem merkið er.

Gamla þúfa


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband