10 Fallin fjárborg á Borgarstandi

Vestur af Borgarstandi er beitarhúsatóft með gerði en suðvestan Smalaskála eru nokkrir fjárhellar með tilheyrandi hleðslum. Tvær fjárborgir stóðu á Borgarstandi en grjótið úr eystri borginni var fjarlægt á sínum tíma. Vestari borgin er hrunin og eru minjar hennar friðlýstar.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Á miðvikudagskvöldið síðasta var farið að punkti nr. 10 , merkið var þá  á sínum stað. Um kl.4 í dag, sunnudaginn 1. ágúst er merkið ekki sjáanlegt. Vildi bara láta vita af þessu. Kveðja.

Anna Jóna

Anna Jóna Kristjánsdóttir (IP-tala skráð) 1.8.2010 kl. 17:29

2 identicon

Mánudaginn 9 ágúst var ekkert merki sjáanlegt. Við vorum tvær fjölskyldurnar sem leituðum, 8 manneskjur alls og teljum okkur nokkuð viss um að merkið sé horfið.

Óskar (IP-tala skráð) 9.8.2010 kl. 19:55

3 identicon

Sammála við vorum á sunnudeginum og fundum ekkert merki heldur...

Carolin Guðbjartsdóttir (IP-tala skráð) 9.8.2010 kl. 21:16

4 identicon

Þriðjudaskvöldið 10.ágúst er ekkert spjald nr.10 við borgina með friðlýsingarstaurnum á Borgarstandi.

Sigurður Jóhannsson (IP-tala skráð) 10.8.2010 kl. 23:18

5 Smámynd: Hönnunarhúsið ehf.

Nýtt merki verður sett upp í dag.

Hönnunarhúsið ehf. , 11.8.2010 kl. 09:13

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband