Færsluflokkur: Ratleikur

14 Norðurfjárhús

Á sjávarbakkanum skammt frá bæjarhól Lónakotsins, beint niður af klapparhól sem var ýmist nefndur Krumhóll, Vökhóll eða Sönghóll, er það sem eftir er af Norður­fjárhúsum. Þykkhlaðnir veggirnir standa enn þó svo að þekjan hafi fyrir löngu fokið á haf út. 

15 Hausthellir vestan við Lónakot

Hausthellirinn var skammt vestan við Lónakotstúnið og þótti ekki merkilegt skjól. Hellirinn var notaður þegar taka þurfti lambærnar heim á bæ alveg undir jólin. Vegna smæðar sinnar var hann lagður af um leið og Norðurfjárhúsin höfðu risið um aldamótin 1900. 

16 Fyrirhleðsla við Smalaskálaskúta

Rétt  norðan Reykjanes­brautar nærri Lónakoti er Sjónarhóll, mikill og margskiptur hraunhryggur. Norðaustan Sjónarhóls og vestan við Jakobs­vörðuhæð er fjárhellir með fyrirhleðslu. Þetta er fjárskjól sem heitir Smalaskálaskúti þó svo að skútinn sé spottakorn frá Smala­skálahæð.

17 Jakobsvörðuhæðarrétt

Norðan Jakobsvörðu er forn stekkur ásamt æva­gamalli fjárrétt sem dregur nafn sitt af hæðinni, en minjarnar vitna um búskaparhætti fyrri tíðar.  Réttin er skammt frá fornum götum, sem heita annarsvegar Vetrarleið og hinsvegar Óttarsstaðafjárborgarstígur.

18 Jakobsvarða

Jakobsvarða líkist lágri heysátu og hefur örlítið hrunið úr henni þar sem hún stendur á Jakobs­vörðuhæð. Enginn kann skil á Jakobi. 

19 Stekkurinn við Þorbjarnarstaði

Nokkuð stór réttagarður liggur utan um Stekkatúnið norðan undir Stekkatúnshæðinni. Innan garðsins var Stekkatúnið sem var slegið þegar leið á sumar enda allt sauðféð fyrir löngu farið á fjall. Innan Stekkatúnsins var hlaðið gerði sem skiptist í stekkinn og lambakró.

20 Skotbyrgi við Mosastíg

Víða í Hraunum voru hlaðin skotbyrgi snemma á 19. öld sem refaskyttur notuðu til að felast er legið var fyrir tófu. Flest skotbyrgin hafa staðist tímans tönn en þeim var oftast fundinn staður nálægt grenjum eða þar sem smalar sátu yfir sauðfé sem var á útigangi árið um kring.

21 Réttargjá

Náttúrleg hraunsprunga skammt austan við jarðvegsnámu þar sem áður stóð gjallhóllinn Þorbjarnar­staða­rauðimelur. Hlaðið er fyrir sprunguna að norðanverðu og þar var eitt sinn réttarhlið úr timbri til að létta smölum fjárgæsluna þegar vetrarbeit var stunduð þarna.

22 Skotbyrgi á Smalaskálahæð

Á Smalaskálahæð við Krist­rún­arfjárborg er lítið skotbyrgi þar sem skyttur dvöldu dægrin löng í von um að góma varginn áður hann næði að drepa búsmalann. Kjötstykki af sóttdauðu hrossi eða sauðkind sem lyktaði vel var lagt í skotlínu til að lokka varginn út úr fylgsni sínu.

23 Bekkjarskútinn

Bekkjarskútinn í Bekkjarhraunskeri er nokkuð stór og framan við hann eru fyrirhleðslur sem loka  opinu sem snýr mót norðvestri. Hraunið umhverfis skútann nefnist einu nafni Bekkjarhraun en hæðirnar kallast Bekkir. Tvær fornar götur liggja til sitthvorrar handar við Bekkina. 

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband