17. Fremsti-Höfði
29.5.2011 | 16:47
Fremsti-Höfði er lítill móbergsklettur með vörðu sem er gamalt landamerki milli Þorbjarnarstaða og Litla-Lambhaga. Kletturinn sker sig úr nánasta umhverfi þar sem hann stendur því sem næst á gossprungunni milli Fjallsins eina og gígs sem var nefndur Hraunhóll. Sá gígur er að mestu horfinn vegna mikillar efnistöku.
Flokkur: Göngugarpur | Breytt 24.6.2014 kl. 13:40 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.