Gestabók

Skrifa í Gestabók

  • Skráðir notendur gefi upp notandanafn og lykilorð efst á síðunni og skrifi svo færslu í reitinn hér að neðan. Gestabókarfærslan birtist strax.
  • Óskráðir notendur geta einnig skrifað færslu, en verða beðnir um nafn og netfang eftir að smellt er á "Senda". Þeir fá staðfestingarslóð senda í tölvupósti og þurfa að smella á hana til að gestabókarfærslan birtist.

Gestir:

kort

Mér fynnst lengdar og breiddarlinur á korti vera alltof daufar mær ólesenlegar eins mætti lengdargráður vera allar en ekki önnurhver svo að þeir sem vilja mæla út geti það á auðveldari hátt takk kærar kvjeður

Jóhann Gunnarsson (Óskráður, IP-tala skráð), mán. 3. ágú. 2015

Hamranes no2

Eg fór í dag að leita að merki fann ekki en taldi mig vita nokkurnveginn hvar það væri,ég tel þetta svæði vera talsvert hættulegt yfirferðar þegar komið er upp í hlíðina í átt að brún,væri þörf á betri vísbendingu.P.S.er merki rétt á korti kærar kveðju

Jóhann Gunnarsson (Óskráður, IP-tala skráð), mán. 27. júlí 2015

Finnum ekki fjárhúsatóftir

komdu sæll við erum tvær sem erum búnar að leita og leita að fjárhúsatóftum í vísbendingu 2og við finnum ekki neitt!við höfum bæði gengið frá park merkinu sem er reyndar ekki alveg skýrt hvar er og líka gengið frá Setbergshverfinu gengum stíginn alveg inn að sumarbústaðarbyggðini og svo upp í hlíðina þar og niður aftur og gengum meðfram hlíðinni til baka en sáum engar tóftir. við fundum helli sem við höldum að heiti kannski Kershellir en það er ekkert merkt. getur þú gefið upp einhver meiri kennileiti til að miða við? kv Dísa Guðmundsdóttir

Dísa Bergþóra Guðmundsdóttir (Óskráður, IP-tala skráð), mið. 23. júlí 2014

Hönnunarhúsið ehf.

Fyrirspurnir

Jóhann Gunnarsson: Hafðu samband í síma 896 4613, kv. Guðni

Hönnunarhúsið ehf. , sun. 14. ágú. 2011

22.Við hraundranga

var siðdegis 13/8 að leita að merki 22 ,er með gps sem útreiknað var 64 00,095N 022 04,055W en fann ekkert merki,gekk 2hringi kringjum klifraði upp á en gafst upp eftir 1tíma.ps var eg heitur.

Jóhann Gunnarsson (Óskráður, IP-tala skráð), sun. 14. ágú. 2011

Anna Jóna og Haraldur!

Fyrir tilvijun lenti ég inn á þessa athyglisverðu síðu. Bestu Samstillingarkveðjur frá Finnlandi, Björgvin

Björgvin Björgvinsson (Óskráður, IP-tala skráð), sun. 20. mars 2011

Hönnunarhúsið ehf.

Merkin uppi eitthvað áfram

Sæl verið þið, Anna Jóna og Haraldur. Þau verða uppi eitthvað áfram og mun ég láta vita þegar þau verða tekin niður, og jafnvel hver þeirra. kv. Guðni

Hönnunarhúsið ehf. , fim. 25. sept. 2008

Ratleikur

Okkur langaði til að forvitnast um hvort merkin verða fjarlægð nú þegar leiknum er lokið? Við fundum 20 merki, en langar til að leita að þessum sjö sem við eigum eftir að finna. Við gömlu hjónin höfum nokkrum sinnum tekið þátt í ratleiknum með heldur lélegum árangri, en núna vorum við svo heppin að lenda í slagtogi með skemmtilegum hópi sem kom okkur vel af stað. Það er satt að segja alveg ótrúlegt hve miklu fróðari við erum um nágrenni Hafnarfjarðar eftir þetta sumar og hve margir fallegir og athyglisverðir staðir eru hérna í kring. Og ferlir.is hefur líka ýtt undir áhugann með sínum frábæru upplýsingum. Hafið kæra þökk fyrir skemmtilegann leik. með kveðju Anna Jóna og Haraldur. Tunguvegi 2

Anna Jóna Kristjánsdóttir (Óskráður, IP-tala skráð), fim. 25. sept. 2008

Gleraugu

Gleraugu fundust við merki 13 Gjásel hægt er að vitja þeirra í Altis ehf Bæjarhrauni 8 Theodór

Theodór Sigurðsson (Óskráður, IP-tala skráð), fös. 8. ágú. 2008

hbb

Betra seint en aldrei - en heldur of seint byrjað núna

Ég hef tekið þátt í ratleiknum árum saman og fagna því að hann sé nú kominn út einu sinni enn. Mér sýnist hann þar að auki vera sérstaklega spennandi að þessu sinni. Hins vegar er bagalegt hve seint hann kemur út vegna þess að það að klára alla punktana er talsvert verk. Margir fara úr bænum yfir sumarleyfistímann og þykir því best að fara þessar ferðir fyrir og eftir þann tíma. Nú er útséð um að ekki næst að fara margar göngur fyrir sumarfrí og þá er í raun bara ágúst og hluti af september eftir. Ég vona að á næsta ári geti ratleikurinn verið tilbúinn mun fyrr, helst í byrjun maí.

hbb, lau. 28. júní 2008

Góður dagur í almenningi

Við hjónin höfum oft átt skemmtlegar göngur eftir ratleiknum með börnunum en aldrei klárað leikinn. Nú erum við staðráðin í að klára leikinn í fyrsta skipti. Í dag gengum við frá gamla keflavíkurveginum upp straumselsstíg vestri og upp að Straumsseli og Straumsselshellum. Á leiðinni villtumst við af leið og hittum þá fyrir tilviljun Ómar Smára og félaga hans á göngu. Ekki lá á leiðbeiningum hjá þeim og gekk vel að finna staðina. Þetta var þó lengsta ganga okkar hjóna í sumar, um 4 klst. Bestu þakkir til Guðna og Ómars Smára fyrir að leggja þennan skemmtilega leik. Leikurinn hefur svo sannarlega víkkað sjóndeildarhringinn um forna staði hér fyrir ofan fjörðinn og ýtt okkur áfram í gönguferðir sem aldrei fyrr. Pálmi og Ásgerður

J. Pálmi Hinriksson (Óskráður, IP-tala skráð), lau. 8. sept. 2007

Rósa Jónsdóttir

Göngustafur í óskilum

Heill og sæll Gekk Hlíðarveginn um verslunarmannahelgi og fann þar göngustaf. Þokkalegasta eintak sýnist mér, óljóst hvað hann er búinn að dvelja þarna lengi. Þar sem mig grunar að áhugafólk um gönguferðir niður í Selvog hafi líka gaman af ratleik ákvað ég að leita á þínar náðir með tapað/fundið auglýsingu. Bestu kveðjur Rósa

Rósa Jónsdóttir, mán. 13. ágú. 2007

Við sáum tófu á milli fyrsta og annars pósts.

Það er skemmtilegt að segja frá því að þegar við vinkonurnar í saumó vorum að rölta að stöð eitt frá stöð tvö gengum við fram á tófu. Í fyrstu heyrum við þetta hrigalega gagg eða garg, og héldum að þetta væri frá fugli eða jafnvel krökkum, en viti menn rétt fyrir framan okkur birtist tófa. Mjög snotur en hún var hrædd. Kveðja, Alda Agnes

Alda Agnes Sveinsdóttir (Óskráður, IP-tala skráð), fim. 12. júlí 2007

Markrakagil ?

Fyrsta annað eða þriðja a-ið

Halldór (Óskráður, IP-tala skráð), þri. 10. júlí 2007

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband