23 Markrakagil
17.6.2013 | 22:31
Allt frá fyrstu landamerkjalýsingu frá 2. degi jóla árið 1603 var Markrakagil eitt af landamerkjum Garðakirkjulands, sbr: Úr Steinhúsi við neðri Kaldárbotna þaðan í Markrakagil í Undirhlíðum, sem er norðanvert við Fjallið Eina, þaðan til Markraka í Dauðadölum og þaðan í mitt Húsfell.
Árið 1959 þegar Hafnarfjörður varð lögsagnarumdæmi út af fyrir sig með áunnum kaupstaðarréttindum, voru mörk þess m.a. mið við gilið: ...Þá lína i markaþúfu við gömlu sandgryfjurnar. Þaðan í Lækjarbotna. Þá í Gráhellu. Þaðan í miðjan Ketshelli. Eftir Selvogsmanna- eða Grindaskarðavegi í Kaplator (Strandartorfur). Þaðan bein lina í Markraka. Þaðan bein lína um Melrakkagíl (Markrakagil) að Krýsuvíkurvegi. Meðfram Krýsuvikurvegi, þar til kemur að norðurbrún Kapelluhrauns. Með norðurbrún Kapelluhrauns að Keflavikurvegi. Meðfram Keflavíkurvegi suður fyrir Kapelluhraun til sjávar.
Flokkur: Þrautakóngur | Breytt 24.6.2014 kl. 13:27 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.