Innan við Stóra-Skógarhvamm (Stóra-Hríshvamm) í Undirhlíðum er Stóra-Skógargil, mikil hvelfing. Þar hafa hrafnar gert sér laup um langt skeið, nú síðast í vor. Skógræktarfélag Hafnarfjarðar plantaði trjánum á árunum 1958 til 1964 með aðstoð drengja úr Vinnuskólanum í Krýsuvík. Skógurinn var opnaður almenningi 25. apríl 2007. Nú er þar mikil lúpína og því best að fylgja lækjarfarveginum upp gilið.
Flokkur: Þrautakóngur | 22.6.2014 | 22:48 (breytt 24.6.2014 kl. 13:20) | Facebook