Þessa stóru og heillegu fjárborg hlóðu börn hjónanna frá Þorbjarnastöðum í Hraunum um aldarmótin 1900. Borgin er fallega innhlaðinn að ofan, hringlaga með leiðigörðum út frá dyrum til suðausturs. Inni í borginni er hár beinhlaðinn veggur. Líklegt má telja að topphlaða hafi átt borgina og að veggurinn inni í henni hafi átt að halda undir þakið þegar það lokaðist. Svipuð fjárborg, topphlaðin, er í Djúpadal í Selvogi, en bóndinn á Þorbjarnarstöðum, Þorkell Árnason, var einmitt frá Guðnabæ í Selvogi og því verið kunnugur þeirri borg.
Meginflokkur: Ratleikur | Aukaflokkur: Þrautakóngur | 18.6.2017 | 22:42 | Facebook