Hrútagjá umlykur Hrútagjárdyngju. Líklega er gjáin í heild u.þ.b. 5 km löng og hrikaleg á köflum. Öskulög í jarðvegi ofan á hrauninu benda til að hraunið hafi myndast fyrir u.þ.b. 5000 árum. Áður en dyngjan sjálf gaus myndaðist gífurlegur undirþrýstingur svo yfirborðið lyftist smám saman og myndaði loks háa bergveggi allt umhverfis - með tilheyrandi sprungu og gjármyndunum. Hraunskjöldurinn hlóðst upp og gígbarmarnir risu yfir umhverfið. Gos hófst og gríðarstór hrauntjörn myndaðist og tæmdist. Ógurlegur þrýstingur frá innskotinu myndaðist undir kvikuhólfinu. Storknað yfirborðið hefur verið tiltölulega þunnt svo landið reis enn meira en ella. Við það lyftist svæðið um 10-15 metra og myndaði nokkurs konar skál, sem fyrr er lýst. Upplyftingin sést allt umleikis.
Merkið er norðan við gjána.
Flokkur: Þrautakóngur | 19.6.2018 | 19:11 (breytt kl. 19:13) | Facebook