Ratleikurinn hafinn

Guðni Gíslason afhendir Guðmundi Rúnari fyrsta kortiðGuðmundur Rúnar Árnason, forseti bæjarstjórnar fékk afhent fyrsta ratleikskortið og með því var ratleikurinn formlega settur af stað. Eftir smáhnökra í bókbandi komu kortin í hús um kl. 16 en þeir sem mættu í mótttökuna fengu vandlega handbrotin kort! Hann þakkaði þeim sem stóðu að gerð leiksins, nú og í gegnum árin en sagðist verða að viðurkenna að hann hafi aldrei tekið þátt í leiknum en sagði að hleðslurnar vekti áhuga sinn og nú færi hann örugglega af stað.Gestum var boðið upp á hafnfirskt vatn í flöskum í boði hafnfirska félagsins Nordic Water.

Fólk beið spennt eftir að fá ratleikskortið.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ég tók eftir því áðan að öðru megin á lausnablaðinu er síðasti skiladagur sagður  21. sept. en hinu megin á sama blaði er talað um 24. sept.  Verður þá ekki 24. að gilda ?

kveðja

Anna Jóna

Anna Jóna Kristjánsdóttir (IP-tala skráð) 21.9.2010 kl. 11:50

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband