Í Smalaskálahæð er Skálin (Smalaskálaker), skjólgóður rauðamalarhóll í einu af fjölmörgum hraunbollum Hrútagjárhrauns. Árið 1974 var þarna komið fyrir listaverki; Húsbyggingin (Das Haus Projekt) eftir Hrein Friðfinnsson. Húsbyggingin byggði á sannri sögu eftir Þórberg Þórðarson, Íslenskum aðli, um sérvitring sem afræður að byggja hús þar sem innihliðin snýr út. Hreinn ákvað að taka þessa hugmynd upp og byggði húsið þannig að veggfóður þess og gardínur lágu utan á s.s. á röngunni. Með tímanum varð Slunkaríki að braki á víð og dreif um Smalaskálakerið. Í framhaldinu var komið þar fyrir grind af listaverkinu til minningar um það er sést enn.
Rauðhóllinn í Smalaskálakeri er merkilegastur fyrir það að þessi litli rauðamelshóll skuli hafa áorkaði að stöðva framrás hrikaleika Hrútagjárdyngjuhraunsins á þessu svæði gagnvart honum sjálfum. Þrátt fyrir álagið hefur rauðhóllinn staðið fyrir sínu og ekki látið hið mikla hraunálag yfir sig ganga.
Flokkur: Göngugarpur | 4.6.2015 | 14:14 (breytt kl. 14:22) | Facebook