Þrautakóngur
Helgafell. Gatið í vestanverðu Helgafelli er til komið vegna ágangs vatns og vinda í kjölfar yfirgangs ísaldarjökulsins. Merkið er við kletta ofan við „gatið“. Fara þarf þarna varlega á þessum slóðum. Merkið er við klett ofan við...
12.6.2019 | 13:51 (breytt kl. 13:51) | Facebook
Kerið er dæmigert sem einn af hinum fjölmörgu gígum á sprungurein er varð til í afgerandi eldgosinu árið 1151. Sprungureinin náði allt frá suðurströnd Reykjanesskagans, þar sem elsta frumbyggjabyggð landsins laut undir hraun, á um 25 km langri gossprungu...
12.6.2019 | 13:50 (breytt kl. 13:50) | Facebook
Fjallsgjá er dæmigert dæmi um gliðnun jarðskorpunnar. Slíka gliðnun má sjá víða í gömlum hraunum á Skaganum. Hún er einkar greinilegust á Vogaheiðinni. Merkið er við háan gjábarm.
12.6.2019 | 13:49 | Facebook
„Fjallið eina“ er í landamerkjalínu milli Krýsuvíkurlands og fyrrum Garðalands, annars vegar Grindavíkur og Hafnarfjarðar. Það þykir þó öllu merkilegra vegna bergstapans ofanverðan. Við gos undir jökli fyrrum jökulskeiðs náði goshrinan endrum...
12.6.2019 | 13:48 | Facebook
Sauðabrekkur. Meginhluti Almennings er hraun úr Hrútagjárdyngju. Þó má sjá yngri hraun þar inni á milli, s.s. hraun úr gígum Sauðabrekkugjár. Hraunið hefur verið þunnfljótandi og líklega tekið fljótt af. Meginhluti hraunsins er, líkt og gígarnir, norðan...
12.6.2019 | 13:47 (breytt kl. 13:48) | Facebook
Sauðabrekkugjá. Hrauntungustígurinn er ein af hinum gömlu þjóðleiðum millum Hafnarfjarðar og Krýsuvíkur. Markmiðið var að eftir þessa ferð lægi ljóst fyrir hvar „meginleið“ Hrauntungustígsins hafi legið fyrrum. Sem fyrr sagði var...
12.6.2019 | 13:46 | Facebook
Draughólshraun er dæmigert apalhraun. Apalhraun er skilgreint sem úfið hraun er verður til í þeim eldgosum þar sem er flæðigos með basískri, ísúrri eða súrri kviku. Apalhraun er myndast þar sem seigfljótandi kvika flæðir í opnum rásum (hrauntröðum). Þar...
12.6.2019 | 13:44 | Facebook
Óttarsstaðselsrétt – nátthagi. Í seljum fyrrum, er lögðust af hér á Reykjanesskaganum í kringum 1870, var magvíslegur húsakostur, auk meðfylgjandi nytjastaða, s.s. vatnsból, fjárskjól, stekki o.m.fl. Nátthagahleðslurnar ofan við Óttarsstaðasel...
12.6.2019 | 13:43 | Facebook
Urðarás er merkilegt jarðfræðifyrirbæri. Um er að ræða svonefndan „brothring“. Hraunið hefur fallið niður á nokkrum kafla eftir að neðanjarðarhrauná, sennilegast úr Hrútagjárdyngju, hefur stíflast og glóandi hraunkvikan með þrýstingi sprengt...
12.6.2019 | 13:40 (breytt kl. 13:42) | Facebook
Við Alfaraleiðina milli Hafnarfjarðar og Hvassahrauns er mjög sérkennilegur, stakur klettahóll sem er eins og hetta í laginu. Þessi hóll er mjög áberandi þó hann sé ekki stór. Við hann sjást lítil og fá vörðubrot við götuna. Við hólinn liggur...
20.6.2018 | 14:08 | Facebook
Gvendarbrunnshæðarskjól er fjárskjól í Óttarsstaðalandi. Það er með hleðslum við op og er hellirinn í hæðinni við Alfaraleiðina. Fast austan við fjárskjólið er svo Gvendarbrunnurinn, gott vatnsból í klöpp en um brunninn þveran liggur gömul fjárgirðing,...
20.6.2018 | 14:07 | Facebook
Sveinshellir er fjárhellir með fyrirhleðslum í yfirborðsæð í gróinni jarðlægð vestan við Óttarsstaðaselstíginn (Rauðamelsstíginn-/Skógargötuna) milli Bekkja og Meitla áleiðis upp í Óttarsstaðasel. Áberandi kennileiti er varða, Sveinsvarða, við opið....
20.6.2018 | 14:06 | Facebook
Norðan við Litlu-Sauðabrekku og Sauðabrekkugíga er áberandi landamerkjavarða á mörkum Straumslands og Óttarsstaðalands, sem nefnist Fjallgrensvarða og skiptir hinum mosavöxnu Fjallgrensbölum á milli jarðanna, en þar voru áður grösugir hagar. Ofan...
20.6.2018 | 14:04 | Facebook
Kletturinn hefur nafnið Bögguklettur. Klofinn er um 100 metra langur og allbreiður. Hann hefur staðið þarna nokkuð hár fyrrum, en slétta helluhraunið umhverfis hefur síðan runnið allt um kring og í gegnum klofann. Á leið sinni hefur það smurt...
20.6.2018 | 14:03 | Facebook
Við Straumsselsstíg er Tobburétt austari (Litla Tobburétt) í Tobbuklettum. Fyrirhleðsla er í stórri hraunsprungu, en ef vel er að gáð má sjá að hlaðinn bogadreginn veggur hefur verið framan við hana. Hann hefur verið leiðigarður fyrir fé, sem rekið var...
20.6.2018 | 14:02 | Facebook
Í Nyrðri/neðri-Straumsselshellum eru fallegar hleðslur fyrir þremur opum þeirra. Þeir eru frekar lágir innvortis, en í þeim má sjá stuttar hleðslur út frá veggjum. Skammt norðan hellanna er hið ágætasta vatnsstæði.
20.6.2018 | 14:01 | Facebook
Guðmundur Guðmundsson sem keypti jörðina Straum af Páli Árnasyni setti byggð í Straumsseli 1849, en hafði þá búið þar í tvö ár. Fyrsta árið bjó hann í selinu ásamt föður sínum, Guðmundi Bjarnasyni, sem var oft nefndur Krýsuvíkur-Gvendur. Hann skyldi...
20.6.2018 | 14:00 | Facebook
Svo nefnist hæsta hæðin í Almenningi, ágætt kennileiti. Um er að ræða gróna þúfu efst á þversprungnum hraunkletti í u.þ.b. 110 m hæð yfir sjó. Hún sést vel frá Straumsseli og áður fyrr var hún þekkt kennileiti á Straumsselsstíg áleiðis að Fjallinu eina....
20.6.2018 | 09:32 | Facebook
Hrútagjá umlykur Hrútagjárdyngju. Líklega er gjáin í heild u.þ.b. 5 km löng – og hrikaleg á köflum. Öskulög í jarðvegi ofan á hrauninu benda til að hraunið hafi myndast fyrir u.þ.b. 5000 árum. Áður en dyngjan sjálf gaus myndaðist gífurlegur...
19.6.2018 | 19:11 (breytt kl. 19:13) | Facebook
Sel frá Straumi þróaðist um tíma í bæ, eitt fárra af u.þ.b. 350 þekktum seljum á Reykjanesskaganum. Búið var þar með hléum á 19. öld en húsin brunnu í lok aldarinnar. Selið fór eftir það í eyði en bæjartóftirnar eru all myndarlegar og vel greinilegar...
18.6.2017 | 22:43 | Facebook
Nátthaginn skammt suðaustan við Óttarsstaðaselstóftinar er einn sá myndarlegasti á Stór-Hafnarfjarðarsvæðinu; vandlega hlaðnir veggir er umlykja skjólgott jarðfall.
18.6.2017 | 22:43 | Facebook
Þessa stóru og heillegu fjárborg hlóðu börn hjónanna frá Þorbjarnastöðum í Hraunum um aldarmótin 1900. Borgin er fallega innhlaðinn að ofan, hringlaga með leiðigörðum út frá dyrum til suðausturs. Inni í borginni er hár beinhlaðinn veggur. Líklegt má...
18.6.2017 | 22:42 | Facebook
Gjárop í hraunbrún: Margar djúpar gjár og misgengissprungur er að finna í Hrútagjárdyngjuhrauni. Þar á meðal er sprungurein sem er spölkorn norðvestan við Fjallið eina en meðfram henni lá áður ein af mörgum leiðum um Almenninginn. Gjáin virkar eins og...
18.6.2017 | 22:41 | Facebook
Guðmundur Guðmundsson sem keypti jörðina Straum af Páli Árnasyni setti byggð í Straumsseli 1849, en hafði þá búið þar í tvö ár. Fyrsta árið bjó hann í selinu ásamt föður sínum, Guðmundi Bjarnasyni, sem var oft nefndur Krýsuvíkur-Gvendur. Hann skyldi...
18.6.2017 | 22:41 | Facebook
Sauðabrekkugígar eru falleg gígaröð með fallegum hraunmyndunum. Þar má finna lítið skjól með flóruðu gólfi og glugga með hellu fyrir og litlum þakglugga. Þar er merkið. Á svæðinu eru stórar og djúpar gjár, m.a. Sauðabrekkugjá. Skjólið hefur að öllum...
18.6.2017 | 22:40 | Facebook
Húshellir opnast í grunnu jarðfalli ofarlega í Hrútagjárdyngjuhrauni. Um er að ræða rúmgóða hraunbólu í annars lokaðri rás. Þegar inn er komið má sjá hlaðið hús, sem hellirinn dregur nafn sitt af. Til beggja hliða eru rásir er lokast. Í þeirri til...
18.6.2017 | 22:39 | Facebook
Búðarvatnsstæðið virðist vera mótað af manna höndum og þar er staðið regnvatn sem er varla drykkjarhæft nema í hallæri. Um mitt vatnsstæðið liggur hleðsla sauðfjárveikigirðingar sem markaði landaskil milli Óttarsstaða og Hvassahrauns, og þar með á milli...
18.6.2017 | 22:38 | Facebook
Urðarás varð væntanlega til þegar neðanjarðar hraunrás stíflaðist og braut sér leið upp á yfirborðið vegna ógnarþrýstings. Þegar rásin tæmdist féll þakið niður í rásina og myndaði brothring með grjóturð. Oft eru stórir hellar tengdir slíkum...
18.6.2017 | 22:35 (breytt kl. 22:36) | Facebook
Sjónarhóll (Stóri Grænhóll) á mörkum Lónakots og Óttarsstaða er stór og gróinn. Landamerki milli Óttarstaða og Lónakots – byrja rjett fyrir ofan sjáfarkampinn, þaðan í Markhól, sem klappað er á Ótta. Lón. – Frá Markhól í Sjónarhól, frá...
13.6.2016 | 10:58 | Facebook
Húsfell er hæst 287 m.y.s. Um það liggja mörk Hafnarfjarðar og Garðabæjar. Frá því liggur línan áfram til norðurs um vörðu á Kolhól og áfram til norðurs um vörðu skammt ofan við Arnabæli á Hjöllum.
13.6.2016 | 10:58 | Facebook
Næsta síða
»